|
Talning
Fyrir 988 dögum
Að komast í laaangt sumarfrí...woho!!!
|
21.03.2009 22:29:56 / grunbest
Nú eru hlutir að gerast og ég bíð jafn spennt eftir vori eins og barn eftir jólum!!... Jafnvel getur verið að það sem ég hlakka mest til komi áður en vorið kemur, ég ætla ekki að setja markið hærra en "vor" því þá er bara enn betra ef fyrr verður  Fékk að púla í alvöru drullugalla í dag og mikið djöfull var það gaman...hef ekki farið í alvöru drullugalla í ár og aldir...sweet!!!...En ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, takk fyrir heimsóknirnar og endilega commentið. Síja.
»
08.03.2009 01:00:14 / grunbest
Hvurslags!!!...Búin að skrifa og skrifa og svo bara kemur það ekki á síðuna!!!...Jæja verður að hafa það..ég skrifa bara aftur seinna...svo langt síðan ég skrifaði síðast að það tekur enginn eftir þessu hvort sem er, samt fjandans andskoti..var búin að skrifa helling og allt farið...nett pirrandi...en skal skrifa aftur fljótlega, chaó!
»
16.12.2008 20:27:27 / grunbest
Ja hérna...það er sannarlega langt síðan ég bloggaði síðast svo það er best að skjóta inn einhverju smá hérna. Lífið hefur gengið nokkuð sinn vanagang, dóttirin alltaf fyrir sunnan og líður bara vel, okkur hlakkar mikið til að fá hana heim um jólin, hún fær tiltölulega gott jólafrí, kemur heim 22.des. og fer ekki aftur fyrr en 1-2.jan. svo það er bara frábært. Sonurinn fer á suðurlandið líka eftir áramótin, hann á að vera mættur 8.jan. og er spenntur fyrir þessu, þetta er mjög strangur skóli og það verður gaman að sjá hvernig gengur hjá þeim félögum, vonandi verður þetta geggjað. En þetta er samt skrítið nú verðum við við gamla settið alveg alein í kotinu því ekki skreppur maður kvöldstund suður að hitta ungana sína hehe... En að öðru..allir eru að tala um hvað þeir eru búnir að gera fyrir jólin, búa til jólakort, prjóna, sauma eða þæfa jólagjafir, baka eina og eina smáökutegund, þrífa, skreyta o.s.frv. púff..ég er ekki búin að neinu af viti...sko í gær var 15.nóv. og nógur til!!! Og svo er bara allt í einu vika til jóla!!!...Þvílíkt hvað tíminn flýgur..mesta furða að við skulum ekki bara spýtast af jarðkúlunni miðað við hvað hún snýst hratt....annars erum við svo sem búin að dunda okkur smá undanfarna daga...get bara ekki sagt frá því alveg strax hehe.. En ef ég blogga nú ekki meira fyrir jólin þá óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og takk fyrir allar heimsóknirnar á þessu ári  Ég skal svo reyna að vera duglegri að blogga á nýja árinu...Katrín mætti alveg lána mér eitthvað af "bloggorkunni" sinni sko 
»
27.10.2008 19:29:59 / grunbest
  Hún á afmæl' í dag hún á afmæl' í dag. Hún á afmæl' hún Katrín hún á afmæl' í dag. Hún er tvítug í dag hún er tvítug í dag. Hún er tvítug hún Katrín hún er tvítug í dag. HÚRRA HÚRRA HÚRRA!!!!!!!!!!!!!!!!!! Til hamingju elsku dúllan mín.....knús og faðmlög frá okkur öllum...líka Skugga
»
28.09.2008 17:49:16 / grunbest
»
19.09.2008 15:09:47 / grunbest
 TINDASTÓLL/HVÖT...BIKARMEISTARAR 3.FL.KARLA Í FÓTBOLTA!!!!!! Fannar með bikarinn...flottur fyrirliði  Til hamingju strákar með titilinn...þið eruð búnir að standa ykkur frábærlega í sumar, bæði innan lands sem utan og verið til sóma og fyrirmyndar og í alla staði flottastir!! Þið eruð svo samheldnir og liðsandinn svo sterkur og flottur að ég er ekki hissa að þið skuluð vera komnir svona langt, þjálfarinn ykkar, hann Donni, á allan heiður skilið fyrir hvernig hann hefur mótað ykkur og þjálfað og verið einn af ykkur....(enda hélt ég, þegar ég sá hann að hann væri einn úr liðinu...svona átján ára gutti eða svo....Fannari til mikillar skemmtunar)   Kominn með bikarinn á loft!!!!!!
»
13.09.2008 00:07:14 / grunbest
Íslenskara gat það varla verið í dag...grjónagrautur og slátur, rúgbrauð og hangiálegg í hádeginu...í kvöldmat..skyr með berjum og rjóma. Eftir vinnu fórum við nefnilega Kolli, ég og Skuggi í berjamó og týndum 3 lítra af berjum...Skuggi hjálpaði ekki mikið..hann borðaði bara berin og reyndi svo að stela úr döllunum okkar líka ef við litum undan, minnti mig svolítið á Fannar þegar hann var pjakkur, nema hann reyndi aldrei að stela úr döllunum okkar, systir hans vorkenndi honum svo mikið alltaf fyrir að vera með tóman dall að hún kom reglulega til hans og gaf honum af sínu...svo lýsandi fyrir þessa elsku má aldrei neitt aumt sjá...málið var að pjakkurinn var búinn að tína helling..hann bara tíndi það allt í munninn svo kom systirin að hjálpa litla brósa og hellti slatta í hans fötu af hjartagæsku sinni...það leið nú ekki langur tími þangað til það var upp étið og blátt sælubros lék um varir pjakksins....en ég tek það fram að þetta var þegar þau voru miklu miklu yngri  nú eru þau eins og hundur og köttur og Skuggi þarf að skilja á milli...    Nei djók....  ....þau eru eins og alltaf...bara yndisleg...reyndar að fljúga bæði úr hreiðri, Katrín enn og aftur...og Fannar farinn í fyrsta skiptið. Katrín ætlar að prófa tjöruborgina í byrjun næsta mánaðar og fær hún inni hjá Fanneyju systur...takk fyrir það Fanney mín....Fannar fór í framhaldsskólann á Króknum og er á heimavistinni þar...hann er líka að gera það gott í fótboltanum og hægt er að fylgjast með fréttum af því á www.tindastoll.is og einnig hjá þjálfaranum hans www.blog.central.is/tindastoll3kk Hann hefur nokkuð oft þurft til Reykjavíkur í keppnisferðir og fengið þá inni hjá Hauki frænda sínum og stundum alveg fyrirvaralaust...takk fyrir það Haukur minn....(þessar þakkir eiga auðvitað að fara til foreldra hans því ekki eldar þú eða skutlar pjakknum út og suður Haukur minn hehe) Ég ætla ekki að tala meira um fótbolta....læt strákana mína um það...en að lokum...góða nótt og góða helgi heimsóknargestir. Svo væri ágætt að fá comment svona öðru hvoru því þó það sé nice að sjá heimsóknir þá finnst manni eins og maður sé að tala við steininn, álfarnir eru að fylgjast með en þora ekki að tjá sig
»
24.08.2008 02:09:09 / grunbest
Fór í skemmtilega ferð í gær...lögðum upp frá skólanum kl.09.00 og keyrðum sem leið lá inn í Lýdó...Helga Hjálmars fræddi okkur um alla bæi, ábúendur og fleira á skemmtilegan máta, stoppuðum svo við á einum bænum og kipptum með okkur einum herramanni svo hópurinn stóð nú í 24-rum. Áfram var haldið alveg inn að allra innsta bæ í dalnum sem heitir Þorljótsstaðir, þar stoppuðum við smá til að rétta úr okkur. Svo lögðum við á hálendið í virkilega fallegu veðri og útsýnið var gott til allra átta. Við keyrðum sem leið lá alla leið upp að Laugarfelli, þar fengum við samlokur, kex og alveg dýrindis ástarpunga bakaða þá um morguninn af hinni einu sönnu Helgu okkar Hjálmars.... það jafnast fáir á við þá kjarnakonu!!! Þessu skoluðum við niður með kaffi, te, coka cola, epla cider, bjór, rauðvíni og hvítvíni...ekki amarlegur hádegisverður þetta!!! Loks skelltum við okkur í laugina þarna á Laugarfelli og er það í fyrsta skipti sem ég fer í hana, alveg yndislegt og rúmlega það, hafði hópurinn með sér bæði bjór, rauðvín og hvítvín í laugina og var mikið spjallað og hlegið. Reglulega fengum við fréttir af gangi mála hjá okkar frábæra handboltaliði sem var að keppa um að komast í úrslitaleikinn á ólympiuleikunum í Kína. Við vorum öll komin upp úr lauginni og vorum að fá okkur örlítið meiri punga og bjór þegar leiknum lauk þarna úti í Kínahreppi og mikill var fögnuðurinn..unnum hina blóðheitu Spánverja með markahlutfallinu 36-30!!!... Við sáum aldrei skálaverðina (nema sú sem gerði upp) þeir höfðu engan tíma til að sinna okkur….enda hálfgeggjaðir inni í sínum skála að fylgjast með leiknum í útvarpinu …Frá Laugarfelli fórum við áfram og þegar kom að vegamótum Bárðardals og Eyjafjarðar þá tókum við Eyjafjarðarbeygjuna og þá leið hafði ég aldrei farið, þetta var bæði stórkostleg og hrikaleg leið þarna niður í Eyjafjörðinn, ég hafði áður farið Sprengisandinn og niður í Bárðardalinn…afskaplega falleg og eftirminnileg leið en þetta var nýtt, mest hissa var ég á því hversu lengi við vorum að lækka okkur, þetta er verulega langur dalur, við “kriss-krossuðum” niður snarbratta brekku…og þá hélt ég nú að við værum að verða komin niður….en nei…ekki aldeilis…bara sentimeter fyrir sentimetra lækkuðum við okkur og ekki fannst mér það lakara því það er ekki leiðinlegt að fara hægt yfir og njóta náttúrufegurðarinnar. Næsta stopp kom mér verulega á óvart..Leyningshólar..þvílíkt sem þessi staður er fallegur og ekki sjáanlegur frá veginum. Við höfðum náttúrulega verið að keyra um Sprengisand sem er eins og nafnið ber með sér sandur og auðn en þó með fallegu útsýni til fjalla og jökla, en þessi staður kom mér skemmtilega á óvart, ég er ákveðin í að fara þarna og tjalda einhvern tímann. En þarna áðum við og fengum okkur snakk og ídýfur og restina af pungunum og auðvitað skoluðum við þessu niður með einhverju öðru en mjólk Eftir þetta frábæra stopp héldum við til Akureyrar og á hótel KEA þar sem beið okkar dýrindis máltíð. Heim komum við rúmlega tíu um kvöldið eftir alveg frábæra ferð. Fyrsta óvissuferð sem ég fer í og þetta er gaman.
»
02.08.2008 02:43:32 / grunbest
Við Skuggi héldum okkar striki og skutumst á Grúnó-best á fimmtudeginum og mikið var gaman að sjá fallegu broskallana að taka á móti manni þegar maður renndi yfir nýju brúna í Kolgrafafirði. Skuggi litli stóð sig vel á þessari flottustu helgi sumarsins, auðvitað var hann smá ráðvilltur á nýju heimili og missti stykkin sín inni svona fyrst, en það tók hann bara kvöldið að fatta hvað hann átti að gera enda Systa mín með hundhelt heimili og Skuggi gat gengið út og inn að vild í garðinum, litla elskan var ótrúlega sáttur og sæll með það. Svo var ekkert smá hundafargan í plássinu þessa helgi..það er reyndar mikið um hunda í Grundarfirði en það leit út fyrir að allir sem komu í heimsókn ættu líka hunda...Skuggi tók þessu með þokkalegri ró...eignaðist meira að segja góða vinnkonu...hana Birtu hennar Elsu...það var yndislegt að sjá þau saman, ærsluðust og skemmtu sér þangað til Birta nennti þessu ekki lengur..(hún er 6 ára)...þá skammaði hún unglinginn og hann hægði á sér...tók smá tíma þangað til hann fattaði þetta, en þetta er skynsamur ungur kvutti og hann kunni að bakka...beið rólegur og gerði svo aðra árás..bara svona rétt til að athuga hvort litla lafðin væri ekki komin í betra skap...nú ef ekki þá dokaði hann við eins og sönnum herramanni á táningsaldri sæmdi..það var æði að fylgjast með þeim. Eina skiptið sem Birtu varð um og ó þá hafði ég gefið Skugga að borða í dallinum sínum...hún kom svo til hans og var að hnusa þegar hann var að borða matinn sinn....sá stutti urraði duglega...og Birta litla virti það samstundis en varð smá hissa ( hann var þó búinn að hnupla mat úr hennar dalli þegar hann fór til hennar í heimsókn) Þetta sýnir hvað við konur erum umburðalyndar. Ferðin þeirra feðga, Fannars og Kolla og félaga til Danmerkur gekk alveg glymrandi vel...sól og hiti var allan tímann og drengirnir þurftu ekki helminginn af fötunum sem þeir pökkuðu...verri en verstu konur þessir strákar mínir. Strákarnir lentu í úrlitum eftir frábæran leik okkar manna allan tíman, fyrir úrslitaleikinn voru þeir með markahlutfall 21-2 og hvað haldi þið!!!!...MINN maður tryggði þeim sigurinn sem kom þeim í úrslitaleikinn, (hey..maður má vera smá montinn) ekkert karlalið hefur náð þetta langt á þessum leikum svo maður er ekki lítið stoltur!!!!....Leikurinn var þannig að það var spilað 2x30 mín. og eftir þann tíma var staðan 0-0 þá var framlengt í 2x5 mín. og í fyrri tímanum náði Fannar að skora með (lýsing þjálfarans) stór glæsilegu skallamarki og þar með tryggðu þeir sér sæti í úrslitaleiknum!!!! Mikið var ég stolt...og ekki síður Kolli sem hringdi í mig á augabragði eftir þetta....vá þetta var æði. Sælir og glaðir komu þeir svo heim á mánudeginum og við Skuggi pikkuðum þá upp í Borgarnesi og vorum við glöð að sjá þá bæði tvö. Katrín er enn á Spáni...eftir bömpí byrjun+ hefur þetta verið frábær ferð og stúlkan er meira að segja búin að fara á fótboltaleik svo sjálfur fótboltastrákurinn á heimilinu hefur farið á einn leik en stelpuskottið er búin á fara á tvo....nett fyndið. Hún kemur heim aðfaranótt 7.unda en Kolli kemur heim þann 11.da og þá erum við góð öll saman. Fanney sys hringdi svo í mig og ætlar að kíkja í heimsókn...auðvitað ætlar stúlkan sú ekki að fara hefðbundna leið til mín heldur koma Kjölinn norður, hún er á Flúðum með vinafólki og kemur annað kvöld norður í rólegheitin til okkar Skugga og Fannars...veit nú ekki hversu rólegur Fannar verður þessa helgi en ég hef allavega kontról á Skuggmundi hehe...en jæja best að prófarkalesa og kveðja svo.....bið..bið..bið...prófarkarlestri lokið og ekki margar villur...æji jæja laga það þá bara á morgun...góða nótt essgurnar 
»
23.07.2008 02:32:44 / grunbest
Þetta er skrýtin tilfinning...maður hefur sína heittelskuðu í kringum sig alltaf...kannski vantar einn og einn endrum og sinnum...en aldrei alla í einu!!....En þannig er málum háttað núna að ég er bara alveg alein...mig vantar alla mína!!!...Katrín fór til Rvk. á laugardaginn...reyndar fannst mér henni ekki liggja svo mikið á og hefð viljað hafa hana lengur hjá mér...(hún er sko að fara til Spánar í hálfan mánuð en fer ekki fyrr en 23-ja)...það hefði verið gott að hafa hana heima þangað til kom að hennar ferð...en hún ákvað að fara suður á laugardegi og vera með vinum sínum fyrir sunnan þar til hún fer til Spánar....“mamma ekki lengur nóg“ Strákarnir fóru til Danmerkur....héðan frá mér...á sunnudeginum 20.júlí kl.23.30 og flug frá Keflavík kl.07.00. Og þar með vorum við Skuggi bara eftir ein í kotinu og bæði jafn súr að sjá á eftir öllum, en svona er lífið. Fjölskyldan út og suður og ekki fékk maður nú góðar fréttir í gærmorgun með guttann, en gott var að pabbi hans var með honum. Ég held svei mér þá að þetta sé í fyrsta skiptið sem það vantar alla úr familíunni í kringum mig og það er skrítin tilfinning...gott er að Skuggi er kominn inn í dæmið því hann er svo kjút þessi elska, reyndar er litla krílið hálf hissa á þessu öllu saman því hann er vanur því að við séum öll saman, eða allavega flest...hann horfir oft fram í dyr eins og hann sé að vonast eftir hinum heim, en svo gerist ekkert og hann verður voða sorgmæddur litla greyið...heimtar athygli mína og vill kúra í hálsakotinu...hringar sig þar og skammar mig ef ég þarf að færa hann þaðan. En við ætlum nú að skreppa í Grúnó-best trúlega á fimmtudaginn...á eftir að heyra í henni Systu minni. Vona að hún verði heima svo við Skuggi getum heimsótt hana...kemur allt í ljós. En bið að heilsa ykkur í bili kæru lesendur...og Fanney...góða ferð og gangi þér vel á Laugarveginum....*knús*
»
15.07.2008 20:55:48 / grunbest
Stór dagur næsta föstudag....20 ára afmæli Ströngukvíslargengissin...og nú skal grillað og sungið sem aldrei fyrr...hlakka mikið til. Við reyndar urðum að sleppa ferðinni í fyrra þar sem að Kolli var hruninn í bakinu og ekki forsvaranlegt fyrir hann að reyna að sitja í bíl þarna upp á hálendið þó vegirnir séu als ekki svo slæmir fyrir fullfrískt fólk, en við ætlum núna og Skuggi líka  Reyndar er Kolli frekar slappur í bakinu núna og það veldur mér áhyggjum því að hann er að fara með Fannari og félögum til Danmerkur á mánudaginn og svo rétt kominn úr þeirri ferðinni þegar hann fer í karlakórsferðina, en jæja þetta verður allt að koma í ljós...mig allavega hlakkar mikið til að fara uppeftir á föstudaginn. Sonurinn fór með liðinu sínu að spila fótbolta fyrir sunnan um daginn og átti að koma heim þá um nóttina...en nei hann skilaði sér tæpri viku síðar. Var beðinn að mæta á landsliðsæfinar á laugardegi og sunnudegi svo liðið hans fór norður án hans, Rúnar Már og pabbi hans voru svo góðir að þeir buðu honum gistingu hjá sér...takk fyrir það Rúnar og Siggi. Fannar fór svo og hitti Hauk frænda sinn og fjölskyldu og fékk gistingu hjá þeim næstu nótt, svo datt þeim frændum í hug að Fannar gisti áfram þar sem hann átti leik í Grindavík seinna í vikunni og það varð úr...takk kærlega fyrir pjakkin Eyþór og Þyri. Svo ætlum við Skuggi að skjótast til Grúnóbest þar næstu helgi því þá er hin árlega og alveg bráðskemmtilega helgi "Á góðri stund" haldin, verst að við verðum að fara bara ein við Skuggi því restin af fjölskyldunni verður í útlöndum...en við verðum í góðum höndum hjá henni Systu minni og Bent...vona bara að það rigni ekki því Skuggi er óttaleg kuldaskræfa ef það rignir og skelfur eins og hrísla ef hann blotnar þessi elska. Er ekki einhver góð manneskja sem getur útvegað krílinu hlýja peysu eða eitthvað?  Gestabókin er að rykfalla þokkalega svo þið sem eruð á ferðinni getið alveg dustað af henni ef þið viljið...svo er náttúrulega alltaf gaman að fá comment. En kjús í bili....
»
04.07.2008 11:28:35 / grunbest
Jæja góðan daginn allir saman, ég ákvað að skella inn smá færslu svona í morgunsárið þar sem það er rólegt í vinnunni eins og er. Sitjum hérna innilokuð á meðan sólin bakar allt úti, yfir 20°C í gær eftir hádegið þegar birti til og stefnir í annað eins í dag, eins gott að það er föstudagur og spáin fyrir helgina er alveg glymrandi!!! Í gærkvöldi skutumst við Kolli og Skuggi niður í búið og fengum okkur ís í blíðunni, við settumst út til að borða ísinn, Skuggi litli sat og betlaði með fallegu augunum sínum við fætur okkar og létum við eftir honum að fá oggupínuponsu ís á litla puttann til að sleikja….við sátum nú stutt því Skugga var svo kalt að ég varð að taka hann og vefja inn í flíspeysuna mína, hann er óttaleg kuldaskræfa litla greyið, reyndar sátum við í skugga og það golaði aðeins. Við drifum okkur því heim í garðinn okkar góða þar sem ekkert golaði og þar fékk Skuggi pínulítið meiri ís á litla puttann og var sæll og glaður. Kolli aftur á móti fékk hroll þegar hann var búinn með sinn ís svo ég varð að bara að fara inn með strákana mína, ég man nú þegar krakkarnir voru litlir þá var svo gaman að fara með þau og gefa þeim ís, Fannar varð alltaf blár á vörunum og skalf eins og hrísla jafnvel þó við sætum inni í búðinni, en að hætta að borða ísinn…nei aldeilis ekki…frekar fékk hann peysur og svoleiðis frá okkur hinum og dúðaði sig í það okkur hinum til mikillar skemmtunar og hlógu við oft mikið að honum pjakknum. En nú á ég ekki nema viku eftir í vinnunni og er þá aftur komin í mitt góða sumarfrí, það verður notalegt. Ég ætla nú að hætta þessu og halda áfram að vinna…ég byrjaði að blogga þetta klukkan níu í morgun…(morgunsárið)…en nú er klukkan að verða hálf tólf, það var nefnilega ekki lengi mjög rólegt ;-) Bið að heilsa ykkur í bili…endilega látið heyra í ykkur…og Fanney ef þú opnar ekki commentin fyrir neðan þá…viltu senda mér á e-mail eða sms hvernig ég kemst inn á fésbókina þína eins og þú orðaðir það svo skemmtilega ;-)

»
14.06.2008 23:39:04 / grunbest
96 heimsóknir á einum degi og enn 20 mín. eftir af sólahringnum???!!!..Hvað er í gangi???!!!...Og engin commentar???...Ég er nú svo aldeilis vita bit!!!!!!!!!!!!!.....En gaman að þið skuluð kíkja inn  Andskotist til að commenta eða kvitta í gestabókina attna
»
Síður: 1 2 3 4
|
Heimsóknir
Í dag: 10 Alls: 38095
Dagatal
| febrúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | | Fyrri | Næsti |
|